Jáá, fríí.

Frííí. Búið að vera svaka stuð hjá mér síðustu viku.
Búin að fara í eitt próf, stúdentsefnafræðipróf, og gekk mjög vel í
því. Aldrei aftur efnafræði. Bara lífræn efnafræði. Miikið
betra.
Það var rosaleg helgi hjá mér. Fór í partý hjá Unni á föstudaginn.
Endaði með að ég og Alli fórum heim ekki svo seint, afþví það var
allt fólkið farið og Unnur var að fara út að keyra, sem endaði víst
með bílveltu upp í Kópavogi. Á Laugadaginn fór ég til Írisar í
afmæli. Fullt af fólki sem ég þekkti ekki neiiitt, allir að drekka,
og bara stelpur. Það var bara nokkuð gaman. Á Sunnudaginn var Bónus
árshátíð sem var roosaleg. Ég átti að vera driverinn, svo ég fór
fyrst með Unni niður á Seltjarnarnes í fyrirpartý hjá verslunninni
hennar, en svo ég vildi ég fara í bæinn í partý hjá búðinni minni
sem var í Breiðholtinu. Svoo um 7 leytið gerði ég það, en einmitt
þegar ég var búin að finna húsið, þá urðu allir að fara. Veii. Þá
þurfti ég, að sækja Ægi, taka bensín, og keyra uppá Seltjarnarnes
að sækja Unni og co, og keyra uppá Broadway, á korteri. Það tókst
ekki, svo við omum ekki nákvæmlega á réttum tíma, en það endaði
vel. Því miður þurfti ég að fara heim svo klukkan 12, til að skutla
bróður mínum heim.

Mig langaði svooo niður, dansa og svona. En
ég fór til Alla, svo það var allt í lagi.

Svo undanfarið er það bara, sofa læra, sofa læra, ekki læra og svo
framvegis. Ég er ekki nógu dugleg í þessum læri málum.
Ég hef verið hjá Alla undanfarið, og ég á kall sem kann að elda.

Hann bjó til morgunmat handa mér, oog samloku með beikoni og
alls skonar. Kallinn minn kann að elda miiklu meira en ég. Ég kann
ekki að sjóða egg.

Þau springa alltaf. :/
Önnur frétt. Tölvan mín er að gefa sig. Hún er troðfull af
vírusum. Búin að skanna hana með mörgum... skönnum, og það er ekki
að gera sig. Og þetta er ekki útaf klámi, hvort sem það er trúlegt
eða ekki. Þarf að gera eitthvað róttrækara við hana..
En ég ætla að láta þetta duga, áður en færslan eyðist.Óskiði mér
góðs gengis með prófin.
-Endla